Garðar Alfreðsson
skondnar síður!
Grímsey.is!
samr�?�?�?�??�?�?�â�?��?��?�?â�?� �?¢â�??¬â�??¢�?�
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1745 dögum
....
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 734542 dögum
25.11.2007 03:15:12 / grimseyingur

Góða kvöldið gott fólk.


Ég ákvað að gera eina nýja færslu hér svona rétt fyrir svefninn.
Held að það muni nú ekki margir skoða hana þar sem síðasta bloggið hér var 9.maí s.l.
En það hafa margir góðir hlutir gerst síðan þá get ég sagt ykkur.
Ég kominn í flugskólann og var í prófum áðan þar og náði þeim öllum nema heilbrigðisfræði
einkunnir:

  • Afköst og áætlun......8.4
  • Flugvélafræði............7.5
  • Verklag....................9.5
  • Talstöðvarviðskipti....10.0
  • Flugheilbrigðisfræði....6.5

Meðaleinkunn = 8.3

Ég er alveg að deyja úr gleði yfir þessum einkunum og dagurinn hefur verið virkilega erfiður fyrir mig þar sem ég beið stóran part af deginum eftir að Örn myndi hringja og segja mér hvað ég hafði fengið úr prófunum!
En sem betur fer þá komu þau flest bara mjög vel út svo ég get ekki annað en verið bara nokkuð ánægður. :)

En það er eitthvað fátt annað að tala um í dag hjá mér þar sem ég hef bara verið að hugsa um þetta flugdæmi í allan dag :D svo ég ætla að setja punktinn hérna í kvöld.


» 6 hafa sagt sína skoðun

09.05.2007 12:27:37 / grimseyingur

9.maí


Jæja Góðan daginn.

Nú er vika síðan ég bloggaði síðast en ástæða þess er að samræmduprófin hafa verið í fullum gangi.
Ég var semsagt að klára prófin áðan og það var stærðfræði sem rak lestina.
Ég held að ég sé ekki fallinn en ætla ekkert að tala meir um það fyrr en ég fæ einkunnarspjaldið :lol:

Í síðasta bloggi kom ég inná það að Liverpool væru komnir í úrslitaleiknum í meistaradeildinni.
En nú er það ljóst að þar mæta þeir AC Milan, því Milan menn slógu manchester utd samfærandi út, 5-3 samanlagt.
Þetta verður því endurtekning frá 2005 þar sem Milan og Liverpool mættust í Istanbul í Tyrklandi.
Nú fer leikurinn hins vegar fram í Aþenu og verður 23.maí.

Ég hef ekki gert mikið annað í síðustu viku en að læra, læra og læra aðeins meira! :lol:
Fyrir utan helgina þar sem Mamma og Palli bróðir kíktu í bæinn. :)
það er því ekki margt til að skrifa um að þessu sinni svo ég fer að segja þetta gott og ætla að vinda mér í að laga til núna ;) gaman að sleppa úr lærdóminum og fara í að laga til 8)


Ég ætla að enda þetta í dag á að óska öllum Manchester  aðdáendum til hamingju með  litlu  dolluna  sem þeir unnu um helgina ;)


» 12 hafa sagt sína skoðun

02.05.2007 13:13:39 / grimseyingur

2.maí! Dagur sem mér var búið að kvíða fyrir...og það lengi!


Jæja góðan daginn.

Nú eru samræmdu prófin byrjuð svo ég er á fullu að læra fyrir þau.
Ég ætla mér að taka fimm próf
Íslensku-ensku-dönsku-samfélagsfræði og stærðfræði!
Í dag var ég, eins og allir aðrir í 10. bekk í íslenskuprófinu.
Ég held að mér hafi gengið bara þokkalega í því en það er samt best að segja ekkert fyrr en einkunnar blaðið kemur!
Þetta endar svo á Stærðfræðinn sem verður miðvikudaginn 9.5.2007!! :)
Það er alveg magnað að hugsa út í það að ég eigi aldrei aftur eftir að fara í íslensku próf í
grunnskóla! Það er samt svolítið asnalegt eitthvað! :lol:

Liverpool komust í úrslit meistaradeildar evrópu í gærkveldi þegar þeir unnu Chelsea í leik sem fór í vítaspyrnukeppni. Agger skoraði eina markið í venjulegum leiktíma en í vítunum skoruðu Gerrard-Kuyt-Riise og Zenden fyrir Liv og Lampard skoraði fyrir Che.
Liverpool mætir því annað hvort Manchester eða Milan sem keppa í kvöld á San Siro á Ítalíu.
Ég vona að við fáum enskan úrslita leik, þ.e.a.s Liverpool - Manchester.

Jæja nú styttist í kosningarnar svo það er ekki orðið þverfóta fyrir alþingismönnum sem reyna að afla sér atkvæði héðan og þaðan!
T.d héllt Ögmundur Jónasson einhverja ræðu á 1.maí í sjallanum í gær s.s.
Það vantaði bara í lokin : "Munið svo að setja ykkar kross í U" haha
Ég var þarna niðrí sjalla og var svolítið hyssa á því að horfa á lýðinn sem var þarna!
Það var enginn eða allavega mjög fáir sem voru frá svona 20-60 þetta var allt saman fólk sem átti ekkert eftir nema panta kistuna! :lol:
Alltaf gaman að sjá gamalt fólk berjast fyrir bættum kjörum hjá barnabarnabarna börnunum þeirra! haha :lol:

En nú ætla ég að henda mér í lærdóminn aftur svo ég ætla að henda punktinum hingað!



Speki dagsins í dag er:

          Ekki var Lennon skotinn í Yoko heldur í New York.


» 4 hafa sagt sína skoðun

27.04.2007 18:26:25 / grimseyingur

27.apríl 2007

Jæja verið nú öll marg blessuð og velkomin að skjánum!

Heyrðu Einar Helgi....ég ætla ekki einu sinni að reyna að svara commentinu þínu hérna hjá mér!
Það má eiginlega segja að þú hafir rústað mér!
Þó þetta síðasta hafi nú verið óþarfi á Liverpool síðu! haha :lol:

En já ég var sem sagt að koma frá suðurlandinu, nánar tiltekið frá Reykjavíkinni, þar sem við fórum flest í 10. bekk til að horfa á Skólahreystið 2007.
Brekkuskóli lennti í 4. sæti...sem var alveg magnað.
Frábær ferð sem ég sé svo sannarlega ekki eftir að hafa farið í þó ég hafi verið á báðum áttum fyrst! haha var eiginlega ekki að nenna með! :lol:

En ég ætla að fara að finna mér eitthvað gott til að downloada á torrent núna svo ég segi þetta bara gott í bili.

Ég þakka þeim er lásu, Góðar stundir. :)

Málsháttur dagsins:
                          Sá hlær oft sem víða hlær.

» 2 hafa sagt sína skoðun

22.04.2007 17:38:21 / grimseyingur

Grímseyjarferð.


Jæja góðan daginn gott fólk.

Ég skellti mér til Grímseyjar á árshátíð á föstudaginn með Jóa Hennings sem kom að sækja hljómsveitina sem átti að spila á laugardagskvöldið.
Hljómsveitarmeðlimirnir sungu kórsöng alla leiðina svo þetta var bara frábær sjóferð.
Síðan þegar ég var kominn til Grímseyjar náði pabbi í mig og fór með mig heim í Gerðuberg
þar sem að ég fór bara að horfa á sjónvarpið með fjölskyldunni og fólki sem var í heimsókn.:)

Síðan á laugadaginn fór ég í sund með systkinin mín.
Þegar sundið var búið var okkur boðið í kaffi til ömmu 8) alltaf gott að lenda í góðu kaffi ;)
Um kvöldið, kl 20.00 var svo árshátíðin.
Árshátíðin var algjör snilld í alla staði.:lol:
Gert grín af öllum Kiwanis mönnum, borðaður geggjaður matur og svo var sunginn fjöldasöngur. :)
Eftir árshátíðina var svo flott ball.   :)

Í dag fór ég svo bara aftur til Akureyrar eftir alveg frábæra helgi í Grímsey.


Vildi bara deila þessu með ykkur!

Speki dagsins.
Ef Guð getur allt, getur hann þá gert svo stóran stein að hann geti ekki lyft honum?

» 2 hafa sagt sína skoðun

19.04.2007 17:11:42 / grimseyingur

Sumardagurinn fyrsti.


Góðan daginn enn á ný.

Í dag er sumardagurinn fyrsti og af því tilefni var enginn skóli í dag,
svo eg hef bara haft það mjög gott í dag.

Hér á Akureyri er búið að vera gott veður í dag. Ég hef reyndar lítið notið góða veðursins
því á morgun er ég að fara í vorpróf í dönsku :S

Í kvöld er svo hokky leikur þar sem SA menn mæta SR-ingum í úrslitakeppninni um íslandsmeistaratitilinn. Fyrsti leikur liðanna fór fram fyrir sunnan og þar unnu SA svo þeir eru í góðum málum hér í kvöld. Ég held að ef þeir vinni í kvöld þá verði þeir íslandsmeistarar.
Ekki alveg viss samt.

Í gærkveldi fór ég á opið hús í Húsinu og þar voru sýndar tvær stuttmyndir og svo fullt af tónlistar atriðum. Eftir það fórum ég-Dagur-Danni-Sverrir-Helen-Magga-Kolla og Hanna heim til Kollu þar sem við fórum í billiard. :lol:
eitthvað um miðnæti fórum við svo út í körfubolta! svolítið einhverft en jæja! :lol:

Ef veður leyfir á Laugardaginn fer ég heim til Grímseyjar á Kiwanis árshátíðina.
Spáin er nú reyndar ekkert glæsileg en ég vona bara að hún sé vitlaus eins og oftast! :lol:


Nú er þetta bara komið gott í bili...Stutt eins og alltaf! :lol:

Speki dagsins:              
                        Sælir eru fattlausir...því þeir fatta ekki hvað þeir eru vitlausir! :lol:

» 4 hafa sagt sína skoðun

16.04.2007 20:26:37 / grimseyingur

16 dagar í samræmduprófin!

Góðan daginn enn á ný gott fólk.

Ég var að fá torrent í gær svo nú á ég eftir að download(a) öllu sem ég á eftir að sjá þar. :lol:
Ég keypti mer Borat ekki í gær heldur þar áður á 2000. kr.
Svo fór ég á torrent í gær og það fyrsta sem ég sá var að sjálfsögðu Borat. :lol:
Alltaf gaman þegar svona gerist! En það var þó lán í óláni að amma splæsti borat auðvitað á mig 8)

Heyrðu ég held að það eigi að kæfa okkur krakkana í 10.bekk í brekkuskóla í prófum.
Það var sem sagt próf á föstudaginn og svo próf í dag og það á að vera vorpróf út þessa viku
hjá okkur. Svo eftir 16 daga eru samræmduprófin. :S
Svo ég hef lítið annað gert í dag en að læra undir íslensku prófið sem á að vera á morgun.
Svaka skemmtilegur tími núna næstu 3 vikur. :S

Ég ætlaði bara að deila þessu tvennu með ykkur.

Vona að þið njótið lestursins og eigið góðar stundir í vændum.

Málsháttur dagsins í dag er...

Betra er að ganga fram af fólki en björgum. 8)

Svo úrslit skoðunarkannaninnar. Endilega gerið upp hug ykkar og kjósið í þeirri nýju!

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

12.04.2007 19:37:26 / grimseyingur

Kominn á akureyri...


Góðan daginn enn á ný.

Nú er ég kominn aftur til Akureyrar eftir alveg hreint frábært  páskafrí heima í Grímsey.
Ég kom hingað með Twin Otter á þriðjudaginn.
Á þriðjudaginn var ekki gott veður heima í Grímsey og því var ekki hægt að fljúga fyrr en klukkan 18.00. Maður var farinn að sjá fram á að komast ekkert í land þennan daginn sem fyrir mig hefðu nú bara verið mjög gaman! :lol:

Gaman að þessu öllu saman.


Ég er lengi í skólanum á fimmtudögum miðað við aðra daga svo ég var ekki búinn fyrr en klukkan 16.00 :S Kom svo hingað í Vanabyggðina og er bara búinn að vera að læra og eitthvað því það er próf í náttúrufræði hjá mér á morgun....:S
Alltof mikið af prófum að fara í gang hjá mér núna því öll næsta vika fer í að taka vorprófin og svo eftir 19 daga byrja samræmduprófin eða 2.maí....:S :)


Liverpool komust i gærkveldi í undanúrslit meistaradeildarinnar með því að vinna PSV 1-0 á Anfield og samanlagt 4-0. :) :)
í næstu umferð mæta þeir svo Chelsea sem slógu Valencia samanlagt út með þremur mörkum gegn tveimur.
Hinn undan úrslita leikurinn er svo á milli Manchester og Milan. Manchester unnu Roma samanlagt 8-1 og Milan unnu Bayern Munchen 4-2 saman lagt. :)

Tveir hörku leikir sem sagt á næstunni hjá Liverpool og ég spái því að ef þeir vinni Chelsea þá séu þeir bara að fara alla leið eins og þeir gerðu árið 2005. En þá mættu þeir líka Chelsea en það var í 8-liða úrslitunum. 8)

En nú fer ég að segja þetta gott í bili svo verið þið sæl og lifið heil. :)

P.S: Var að setja nokkra nýja brandara inn í "nokkrir góðir".


Svo er við hæfi að enda þetta á einum góðum málshætti frá Sverri Stormsker...

                                                    OFT ER HÆNUHAUS RÆNULAUS.


» 5 hafa sagt sína skoðun

09.04.2007 01:06:44 / grimseyingur

Annar í Páskum....og ég í Grímsey :)

Jæja góða kvöldið gott fólk og gleðilega páska öll sömul.

Ég hef ekki verið mjög duglegur við að blogga upp á síðkastið, því þegar ég er í Grímsey fer ég lítið sem ekki neitt í tölvuna.

Páskafríið hefur verið alveg magnað í alla staði.
Alltaf jafn gott að vera heima í Grímsey með fjölskyldunni og fleiru skemmtilegu fólki.
Síðan ég kom heim hef ég verið að vinna, spila fótbolta, hitta fólk og margt fleira.
Á Fimmtudaginn (Skírdag) fór ég ásamt fleira fólki út að labba um morguninn.
Við gengum hringveginn um Grímsey og fyrir þá sem vilja vita, að þá löbbuðum við bara á "normal" hraða og það tók okkur 3 klukkutíma að labba þessa c.a 10 km.
Gríðarlega stór eyja hér á ferð :lol:   
En eins og ég held mér mikið við að þá er stærðin ekki allt:lol: 8)


Í dag skelltum við Árni Snær okkur svo niðrá bryggju til að veiða rauðmaga, en við náðum aðeins einum, en sáum samt slatta.
Ef að veðrið verður jafn gott á eftir ætlum við að  veiða fleiri rauðmaga
og skella okkur svo í  flotgalla sem verður þá bara magnað! :lol:

Ég held að þetta sé bara að verða "anskoti" nálægt lagi hjá mér svo ég kveð að sinni......

Verið þið sæl. :)


» 1 hafa sagt sína skoðun

01.04.2007 10:56:25 / grimseyingur

1.Apríl

Góðan daginn enn á ný og velkomin á fætur.

Ég er nú eitthvað farinn að slappast í að blogga enda enginn tími búinn að vera fyrir það.
Ég er kominn heim til Grímseyjar og hef það bara voða fínt hér heima.
Búinn að komast í vinnu,fótbolta og fleira gott.
Það er ekki gott veður hér í dag en ég vona að það fari að lægja svo það verði hægt að fljúga.


Gaman að segja frá því að Peter Crouch skoraði þrennu fyrir Liverpool í gær þegar þeir unnu
4-1 á móti Arsenal.
Manchester U unnu líka 4-1 gegn Blackburn eftir að hafa verið undir í hálfleik.
Svo unnu Chelsea að sjálfsögðu heppnis sigur 1-0 gegn Watford. Skoruðu á 92. mín. :S

Barcelona unnu Deportivo la coruna með 2-1 og eru þá komnir í 1. sæti á spáni.
Real Madrid eiga eftir að keppa í kvöld eins og Sevilla.

Við fórum í fótbolta í gærkveldi sem var frekar daufur.
Brjálaður vindur og flestir eða allir með hálsbólgur og vesen.
Einar Helgi var í marki og hann varði fullt af boltum sem komu úr dauðafærum frá hinu liðinu.
Ég gerði 5 mörk. 3 góð og 2 sjálfsmörk haha :lol:
Maður þurfti kannski að hjálpa hinu liðinu en þetta var eiginlega of mikil hjálp. 8)

Nú fer ég að segja þetta gott svo verið þið sæl. :)

» 1 hafa sagt sína skoðun

24.03.2007 13:02:41 / grimseyingur

24.mars

Jæja góðan daginn gott fólk.

Þetta er fyrsta bloggið mitt hér í langan tíma en ástæðan er sú að ég bý núna hjá Gússu og Dabba en ekki hjá Diddu og Helga og hef því bara ekkert farið á netið fyrr en núna.
Helgi og Didda fóru með alla sína afkomendur til Kanarý og verða þar í tvær vikur.

Í gærkveldi var árshátíðin í Lundarskóla. Ég fór þangað með Degi og þar hittum við svo fullt af krökkum. DJ Leibbi sá um tónlistina og var þetta ball algjör snilld frá upphafi til enda.
Þegar ballið var búið kom ég svo bara hingað og fór að horfa á NBA (svaka stuð) :lol:

Í dag ætla ég svo að skella mér uppí K.A heimili til að horfa á stelpurnar spila í handbolta. Strax þegar það er búið fer ég svo niðrí skautahöll og horfi á meistaraflokk í hokkíi.

Vá hvað vikurnar líða hratt núna! ekki það að það sé eitthvað slæmt en þá eru vikurnar bara búnar rétt eftir að þær byrja! Aðeins vika í páskafrí. 8)

Svo svona í lokin á þessu stutta bloggi vil ég minna á að Spánn - Ísland verður næsta miðvikudag svo endilega að horfa á hann þó svo að við skít-töpum honum eins og öllum okkar landsleikjum í fótbolta. :lol:

Nú fer ég að segja þetta bara gott í bili svo við heyrumst bara. :)

» 3 hafa sagt sína skoðun

18.03.2007 17:18:27 / grimseyingur

18.mars.

Góðan daginn gott fólk.

Frábær helgi að baki og þá er tími til kominn að blogga ;)


Ég fór á Sign á Föstudagskvöldinu með Sunnu en tónleikarnir voru í Sjallanum.
Mér fannst þessir tónleikar nú ekkert voða spes því ég fíla, eins og flestir vita, bara svona Bubba tónlist og þar fram eftir götunum.
Á tónleikunum hittum við Sunna, Soníu (systir Fríðar!) og vinkonu hennar og þær skutluðu okkur svo heim að tónleikum loknum. :lol:

Á Laugardeginum byrjaði ég á að horfa á tímatökunni fyrir Formúluna þar sem Kimi Raikkönen komst á ráspól í sinni fyrstu keppni með Ferrari og jafnframt fyrsta móti ársins í Formúlunni!
Á meðan tímatakan var horfði ég einnig á Man.utd vinna Bolton 4-1.
Klukkan 17 skutlaði Helgi mér svo í skautahöllina þar sem ég horfði svo á tvo hokkí leiki.
Fyrst keppti 2. flokkur og unnu þeir SR, 9-2. Á eftir honum kepptu svo SA og SR í 3.flokk og þar unnu SR-ingar 7-4.
Þegar ég kom svo í Vanabyggðina fór ég bara að horfa á sjónvarpið og svo sofnaði ég mjög snemma. :lol:

Í morgun vaknaði ég síðan klukkan 8 og labbaði þá niðrí skautahöllina og horfði á 3.flokksleik aftur. SA og SR gerðu jafntefli 3-3 í morgun þar sem að Brynjar Arnar skoraði loka markið í leiknum. Þegar hann var búinn horfði ég á fyrstu 2 hlutana af leiknum hjá 2. flokk en þegar ég fór þaðan var SA að vinna, 3-1.
Ég sá svo á textavarpinu áðan að Kimi Raikkönen hafði "rústað" formúlunni, kom í mark 7 sekúndum á undan næsta, Fernando Alonso. Gaman að Kimi hafi unnið í fyrsta móti sínu fyrir Ferrari og ég vona svo sannarlega að þetta sé bara það sem koma skal! :lol:
Philip Massa var 7. svo það komu, held ég 13 stig til Ferrari í dag.

Núna er ég svo bara að horfa á Zaragoza- A.Madrid þar sem Zaragoza eru að vinna 1-0.

Nú fer þetta að verða gott enda ágætlega langt á mínum mælikvarða! :lol:

Ég þakka þeim er lásu. Góðar stundir. :lol: 



» 2 hafa sagt sína skoðun

16.03.2007 12:44:02 / grimseyingur

16. mars


Góðan daginn.

Þá er bara komin helgi aftur!
Vá mér finnst eins og það hafi verið helgi í gær!
En ekki það að ég sé að fara að setja eitthvað útá það! :lol:

Mikið verður um að gera um helgina.
3. og 2. flokkur í íshokkí hjá SA eru að fara að keppa og mæta SR, hvort um sig að fara að keppa tvö leiki. :)
Fyrri 2.flokksleikurinn byrjar kl 17 á morgun og 3.flokks leikurinn hefst strax að honum loknum.
Ég ætla að sjálfsögðu að skella mér í skautahöllina að fylgjast með mínum mönnum taka SR í ósmurt ra.... :lol:

Ég fer svo á æfingu á eftir kl 16 og aftur í fyrramálið kl 11!
Frekar sáttur við að komast aftur á æfingar eftir að hafa ekki komist í LANGAN tíma
útaf hælnum á mér! :S

Svo verður keppnisferð í fótboltanum um páskana sem ég fer ekki í því ég ætla að
njóta páskanna heima í Grímsey með fjölskyldunni :)

Heyrðu það er gaman að koma inná það að ég var að fá 425 Bubba lög í tölvuna mína!!!
En þau lög fékk ég frá Lalla bróðir og Óla Degi og þakka ég þeim mikið vel fyrir það!
Hef lítið gert annað síðan að ég fekk þá en að hlusta á þessa snilld! haha :lol:
Alveg frábær lög sem þessi maður hefur samið og þá sérstaklega þegar hann var
í GCD! :)

Þá fer ég að segja þessu lokið í bili! (Gott blogg ekki satt????) haha :lol:

P.S: Það eru aðeins 48 dagar í samræmduprófið í íslensku ! 8) :S


» 2 hafa sagt sína skoðun

13.03.2007 15:22:38 / grimseyingur

13.mars.

Heyrðu já góðan daginn!

Hjá mér hefur allt verið mjög venjulegt og gott og því lítið markvert að segja frá!
Í staðinn fyrir að reyna að rugla eitthvað rugl hér hef ég ákveðið að skella mér í málshættina!
En hér koma nokkrir góðir eftir Sverrir Stormsker!

Oft er lag engu lagi líkt.
Til þess eru vítin að skora úr þeim.
Margur boxarinn á undir högg að sækja.
Auðveldara er að fá leigt í miðbænum en guðanna bænum.
Oft eru dáin hjón lík.
Hagstæðara er að borga með glöðu geði en peningum.
Betra er að fara á kostum en taugum.
Greidd skuld, glatað fé.
Margur bílstjórinn ofkeyrir sig.
Oft hrekkur bruggarinn í kút.
Minkar eru bestu skinn.
Flasa er skalla næst.
Margur slökkviliðsmaðurinn er eldklár.
Blindur er sjónlaus maður.
Betra er að standa á eigin fótum en annarra.

Oft er grafinn maður dáinn.

Fleiri málshættir þessum líkir má finna undir "Málshættir" í "ýmislegt annað´" á síðunni!

En nú fer þetta bara að verða gott! (lang ekki satt?) hehe en svo er gott að minna á það líka að Helgi Garðar Helgason er 18 ára í dag! :) til hamingju með það tjellinn! :lol:

P.S: endilega kommenta! :D


» 4 hafa sagt sína skoðun

09.03.2007 12:56:14 / grimseyingur

Nýtt blogg...


Nei blehh! :lol:

Heyrðu já...

Skólahreystiskeppnin sem ég nefndi um hér í síðasta bloggi var s.s haldin í gær klukkan 16 fyrir sveitaskólana t.d Dalvík og Sigló.. og svo var klukkan 18 haldin keppni fyrir skólana á Akureyri þar sem Bynjar-Inga-Eyþór og Hafdís kepptu fyrir Akureyri og gerðu sér lítið fyrir og unnu keppnina, með 4 stigum!
Margi af krökkum úr Brekkuskóla fóru niðrí íþróttahöll til að fylgjast með og þar myndaðist alveg mögnuð stemming!
7 lið tóku þátt og hér kemur hvar Brekkuskóli lennti í greinunum...
Brynjar lennti í 6.sæti í upphífinum með 12 upphífingar en náði 1-2.sæti í dýfunum með
29 dýfur! :)
Hafdís vann báðar sínar greinar með 39 armbeyjur og hékk svo lengst á slánni, man nú samt ekki allveg hvað lengi en minnir 3 og eitthvað. :)
Eyþór og Inga kepptu svo saman í hraðaþrautinni og enduðu í 2.sæti! :)
Þátturinn verður svo sýndur á skjá einum þriðjudagskvöldið 20. mars.
Nú er svo verið að spá í að taka rútu á leigu og fara suður til að fylgjast með úrslita keppninni sem fer fram í Apríl, því þar mun Brekkuskóli vera einn af 10 skólum sem keppa til úrslita.

En nú er nóg komið af þessu Skólahreystis tali í bili! :lol:

Bekkuvision var haldið áðan og þar voru einhver 8 eða 9 lög sungin og voru þau flest hver ekki góð! :lol:
En í 3.sæti var 10.b í 2. 9.A og í fyrsta sæti var 9.C þar sem Bene tók frumsamið lag sem heitir Silent as the grave. Maggi spilaði undir með honum og þetta var mjög flott hjá þeim.
En klárlega FLOTTASTA atriðið í Brekkuvision frá upphafi fór fram áðan!
Þá brugðu þeir Einar-Árni-Aron og Óli Dagur sér í Rammstein líki og fóru alveg á kostum þar!
Þeir voru með 3 lög á listanum sínum en þeir voru að sjálfsögðu klappaðir upp aftur þar sem Óli, sem söng, kom inn aftur með Bubba stæl og öskraði... " Viljið þið meira???? Viilljiið þið meira???? Ég heyri ekki neitt! Viljiiið þið meiraaaa???" og við þetta að sjálfsögðu lifnuðu allir við!
Þegar þeir komu inn aftur tóku þeir Kaine lust!

En nú fer þessum fréttapistli alveg að ljúka svo ég vona bara að þið eigið góða helgi famundan og bið ykkur endilega að kommenta þetta! :lol:


» 7 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3
Dagsetning
10. febrúar 2012
Klukkan